Ljósablaðið

1. TBL. 20. ÁRG 2026

Hlín Reykdal

Skart sem skiptir máli

Regína

Höfundar

Regína Björk Jónsdóttir

Íris Frímannsdóttir

Ljósið og Hlín Reykdal, skartgripahönnuður, tóku höndum saman og hönnuðu sérstakt „Ljósa-charm“ ásamt armböndum og hálsmenum.

Þegar við leituðum upphaflega til Hlínar með þessa hugmynd bar það einmitt upp á afmælisdegi pabba hennar en hún missti pabba sinn, Jón Reykdal listmálara, úr krabbameini. Henni fannst því skrifað í skýin að vinna með Ljósinu og er að gefa alla sína vinnu. Allur ágóði af sölu skartsins rennur því til Ljóssins.

Ljósaloginn sem "charm"

Ljósaloginn sem "charm"

Merki (logo) Ljóssins var hannað af Önnu Þóru Árnadóttur hjá auglýsingastofunni ENNEMM.

Hinn heiti, rauði litur merkisins táknar hlýju og styrk. Form merkisins er þríþætt: Innsti hlutinn er logandi ljós, tákn fyrir lífið sjálft. Hvíti hluti merkisins er mannsmynd sem umfaðmar ljósið. Loks myndar ysti hlutinn skjól utan um ljósið. Loginn er því lýsandi fyrir starfsemi Ljóssins sem er stundum lýst sem skjóli í stormi krabbameins. Í þessu verkefni fær loginn svo sannarlega að skína skært þar sem Hlín Reykdal teiknaði hann upp og saman umbreyttum við honum í fallegt „charm“ sem fólk getur borið með sér.

Þann 12. maí síðastliðinn var haldinn glæsilegur kynningarviðburður í höfuðstöðvum Landsbankans þar sem skartgripirnir voru frumsýndir.

Á viðburðinum fengu gestir að heyra hvernig þetta fallega samstarfsverkefni varð til, sjá skartgripina í fyrsta sinn og festa kaup á þeim. Auglýsingaherferð verkefnisins var einnig frumsýnd. Um 200 manns mættu á viðburðinn og var stemningin einstaklega góð.

Viðtökurnar fóru langt fram úr okkar björtustu vonum og aðeins mánuði eftir kynningarviðburðinn var allt skartið uppselt. Við fundum fyrir ótrúlegri hlýju og stuðningi frá samfélaginu.

Markmið verkefnisins var að safna fyrir nýjum tækjum í líkamsræktarsalinn í nýja húsnæði Ljóssins, Gylfaflöt 5. Það er okkur mikil gleði að segja frá því að því markmiði hefur verið náð. Við erum flutt í nýja heimilið okkar og nýi líkamsræktarsalurinn er orðinn að glæsilegri aðstöðu sem mun nýtast Ljósberum um ókomin ár. Þetta hefði ekki verið mögulegt án ykkar stuðnings og fyrir það erum við innilega þakklát.

Eftir fjögurra mánaða bið kom loksins ný sending af skartinu í október. Í þetta sinn bættust einnig við skemmtilegir nýjungar. Nú er hægt að fá fínlegra armband með nýrri festingu og bæta við auka skrauti á armböndin og hálsmenin og gera skartið þannig enn persónulegra.

Með þessari nýju sendingu er markmiðið að gera nýja húsnæðið okkar enn fallegra og faglegra.

Skart sem skiptir máli er svo miklu meira en fallegur skartgripur. Það er tákn um stuðning, samstöðu og kærleika. Við erum ótrúlega stolt af þessu fallega verkefni og þakklát fyrir frábærar viðtökur.