Sjö persónuleikar
Viðmælandi minn að þessu sinni er Katrín Júlíusdóttir; ráðgjafi, rithöfundur og fyrrverandi ráðherra. Glaðleg í fasi og töff klædd, í víðar gallabuxur og stuttan, glansandi bomber-jakka, með gleraugu sem ramma andlitið svo fallega inn. Katrín er fyrst og fremst móðir fjögurra drengja og vel gift, að eigin sögn, enda hefur eiginmaður hennar staðið þétt við bakið á henni í öllum lífsins verkefnum, hvort sem er á sviði frama eða þegar veikindi bönkuðu óvænt upp á.
„Maðurinn minn segir að ég sé með sjö persónuleika,“ segir Katrín og hlær, en eiginmaður hennar er Bjarni Bjarnason rithöfundur.
Hún lýsir sér sem afar atorkusamri og að þannig hafi hún alltaf verið. „Það hefur alltaf verið mikill göslagangur á mér. Ég var rosalega virk fram eftir aldri. Eiginlega snarofvirk og var til dæmis alltaf í tveimur og jafnvel þremur vinnum með skóla.“
Þessi unga kona, aðeins 52 ára gömul, hefur prófað ýmislegt og gegnt ábyrgðarstöðum sem hefur hentað henni vel, enda „rosalegur extrovert“, að eigin sögn. Það er þó stutt í að þurfa annað slagið að upplifa að vera ein með sjálfri sér og segist Katrín hafa gefið einverunni meira pláss síðustu ár en fyrstu 40 ár ævinnar. „Ég fæ útrás fyrir introvertinn í skrifunum,“ segir Katrín sem hefur, auk annarra starfa, skrifað tvær glæpasögur. Sú síðasta kom út árið 2022.
Katrín segist hafa viljað „gleypa lífið“ fram eftir öllum aldri, en það hafi breyst undanfarin ár. Hún kunni núna betur við sig í kyrrð og ró og sé þakklát fyrir daga þar sem ekkert stórkostlegt gerist. Spurð hvort það að greinast með sortuæxli hafi orðið til þess að hún vildi taka lífinu með meiri ró svarar hún: „Ekki þessi veikindi sem slík. Ég greindist með brakka-genið árið 2018 og fór í tvöfalt brjóstnám 2019. Hálfu ári áður en ég greindist með meinið fór ég í liðskipti á hné, þannig að það má því segja að þörfin fyrir að njóta betur núsins hafi safnast upp yfir tíma. Þegar maður lifir stóru lífi lendir maður líka í ýmsu og í dag finnst mér eftirsóknarvert að minnka aðeins rammann og sjá betur og njóta þess sem er mér næst.“
Katrín ólst upp á Háaleitisbraut til níu ára aldurs en flutti þá í Kópavog og segist eiga sterkar rætur þar. „Það er úthverfastelpa í mér og landsbyggðastelpa. Pabbi er frá Húsavík, ég var mikið hjá ömmu og afa fyrir norðan þegar ég var stelpa og er líka með taugar þangað.“
Eftir menntaskóla nam Katrín mannfræði við Háskóla Íslands og var mikið í stúdentapólitík. Þegar hún átti einungis lokaritgerðina eftir í mannfræðinni fór hún út á vinnumarkaðinn, fyrst í verslunarrekstur og síðan í hugbúnaðarbransann. Þá hafði hún eignast elsta son sinn og skyldan kallaði.
„Þetta voru svolítið aðstæðurnar, ég þurfti að sjá fyrir okkur og var að vinna mikið.“
Katrín fór á þing aðeins 28 ára, fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi.
„Ég fer inn á þing og er þar í fjögur kjörtímabil. Það var krefjandi en hentaði mér samt mjög vel því það er mikið um samskipti á þinginu.“
Hún eignaðist tvíbura árið 2012 á meðan hún gegndi embætti iðnaðarráðherra en tók við stöðu efnahagsráðherra þegar hún kom til baka úr leyfi. „Ég er vel gift svo þetta gekk allt upp. Það hefur alltaf hentað mér vel að hafa mikið að gera. Því fleiri boltar á lofti því meiru virðist ég koma í verk, eins undarlegt og það nú er.“
Katrín var á þingi til 2016 en fór þá að hugsa sér til hreyfings. „Mér finnst svo mikilvægt að vera alltaf upp á mitt besta á þeim stað, á þeim tíma, sem ég er hverju sinni. Ef orkan fer að dala þá er kominn tími til að skipta um vettvang.“