Það fylgja því alltaf blendnar tilfinningar að flytja frá stað sem manni hefur liðið vel á. Þannig voru tilfinningarnar þegar starfsfólk Ljóssins kvaddi Langholtsveginn, sem hefur verið heimili starfseminnar um árabil.
Á Langholtsveginum fékk starfsemin að vaxa og þróast og þangað leituðu fjölmargir einstaklingar og fjölskyldurstuðnings á viðkvæmum tímum í lífinu. Á Langholtsveginum byggðist jafnframt upp sú menning sem við viljum að einkenni Ljósið: Fagmennska, hlýja, nánd og heimilislegt yfirbragð. Fyrir þann tíma og allt sem húsnæðið á Langholtsvegi hefur gefið okkur erum við innilega þakklát.
Undanfarin ár hefur starfsemi Ljóssins vaxið og þörfin fyrir þjónustuna aukist. Húsnæðið við Langholtsveg var orðið of þröngt til að anna eftirspurn og veita starfseminni það svigrúm sem þörf er á. Með flutningnum að Gylfaflöt 5 skapast tækifæri til að mæta þessari þróun og byggja þjónustu Ljóssins enn betur upp til framtíðar.
Okkur þótti mikilvægt að nýja húsnæðið yrði skipulagt og útbúið sérstaklega með starfsemi Ljóssins og þarfir þeirra sem þangað leita í huga.
Að Gylfaflöt verður mun rýmri aðstaða fyrir líkamlega endurhæfingu, með þremur æfingasölum, mælingaherbergjum og góðri búnings- og sturtuaðstöðu. Fleiri viðtalsherbergi gera okkur kleift að bæta enn frekar sálfélagslegan stuðning og rúmgóður fræðslusalur skapar betri umgjörð um fræðslu og hópastarf. Skapandi iðja fær einnig meira svigrúm með bæði leirverkstæði og listasmiðju.
Hjarta hússins er rúmgóður matsalur, kaffihús og setustofa þar sem gefst rými fyrir samveru og samtal. Sérútbúið eldhús bætir aðstöðuna til muna og starfsmenn fá stórbætta vinnu-, fundar-, matar- og búningsaðstöðu. Í húsnæðinu er lyfta,gott aðgengi er að innganginum og um 50 bílastæði fyrir starfsemina.
Að meðtöldum þessum jákvæðu breytingum hefur einnig verið lögð rík áhersla á að taka með það sem ekki verður mælt í fermetrum. Á Langholtsveginum varð með árunum til sérstakur andi sem margir, sem þangað komu, þekkja vel; hlýja, nánd og sú tilfinning að vera tekið opnum örmum.
„Við höfum því ekki aðeins verið að flytja starfsemi milli húsa. Við höfum viljað taka sálina á Langholtsveginum með okkur á Gylfaflötina. Nýja húsið á að veita okkur meira rými og betri aðstöðu, en áfram á fólk að finna sömu hlýjuna þegar það gengur inn um dyrnar, sömu nærveruna og samfélagið sem hafa einkennt Ljósið í gegnum árin. Húsin eru ólík, en hjartað slær á sama hátt.“
Uppbyggingin að Gylfaflöt 5 var stórt verkefni og að því kom fjölbreyttur hópur hönnuða, verktaka, iðnaðarmanna, ráðgjafa og annarra samstarfsaðila. Öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg og unnið að því að gera nýtt heimili Ljóssins að veruleika færum við einlægar þakkir.
Síðast en alls ekki síst þökkum við þeim fjölmörgu einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og öðrum velunnurum sem hafa stutt Ljósið, bæði nú og undanfarin ár. Margir hafa lagt sitt af mörkum til að safna fé fyrir bættri aðstöðu og gert okkur kleift að stíga þessi stóru skref. Sá stuðningur er forsenda þess að félag eins og Ljósið geti vaxið og þróast í takt við þarfir þeirra sem til okkar leita.
Við kveðjum því Langholtsveginn með þakklæti. Nú tekur Gylfaflötin við sem nýtt heimili, með meira rými, betri aðstöðu og nýjum möguleikum. Við tökum það besta frá Langholtsveginum með okkur og gefum því tækifæri til að vaxa enn frekar.