Næring og núvitund
Auk hannyrða hefur Bryndís nýtt sér fjölda námskeiða hjá Ljósinu m.a. ýmis fræðslunámskeið í næringu og núvitund, yoga nidra, djúpslökun, námskeið í samkennd í huga og hjarta þar sem kenndar eru leiðir til að róa taugakerfið og styrkja andlegu hliðina. Hún sótti einnig EMDR-námskeið, þar sem fólki eru kenndar aðferðir við að vinna úr áföllum.
„Ég er bara með fullt vopnabúr!“ segir hún og brosir við. „Það er bara svo margt og svo er náttúrulega allt starfsfólkið sem er bara stórkostlegt.“ Hún ber heilbrigðiskerfinu einnig vel söguna og segist ekki hafa yfir neinu að kvarta þar.
Bryndís hefur nýlega verið á námskeiði fyrir þá sem eru með langvinnt krabbamein og eins á náttúrunámskeiði, þar sem fókusinn er á slökun, athygli og að virkja skilningarvitin.
Aðspurð segist hún alltaf hafa verið hraust og að jafnframt sé áskorun að vera kippt út úr sinni rútínu svo skyndilega. „Hjá mér er það þannig að vinnan er bara akkerið mitt. Ég vakna á morgnana, klæði mig og geri mig tilbúna fyrir vinnuna, alveg sama hvað bjátar á í einkalífinu. Þess vegna tók ég strax ákvörðun um að nýta mér allt það góða sem er hér [hjá Ljósinu] og taka þátt í því sem er í boði. Iðjuþjálfarnir meta svolítið með manni hvað er gott að fara í.“
Bryndís segir dagana geta verið sveiflukennda og að öll fjölskyldan sé svolítið með í öldurótinu, en hún er gift og á þrjú uppkomin börn, tengdason og einn hund. „Við vorum strax með allt uppi á borðum. Ég útskýrði bara fyrir þeim hvað var í gangi og þau eru dugleg að spyrja. Þau fengu líka þjónustu hjá Ljósinu. Svo tókum við ákvörðun um að láta heimilislífið ekki litast af þessu.“
Bryndís bætir við að allir á heimilinu séu duglegir að taka þátt í heimilisverkunum og það sé afar mikilvægt fyrir hana enda þurfi hún að passa upp á hvíldina. „Ég hef átt svolítið erfitt með það því ég hef alltaf verið virk.“
Louisa segir mikilvægt að fólk búti niður verkefnin. „Endurhæfingin snýst líka um að forgangsraða. Það eru sum verkefni sem mega bíða.“ Bryndís grípur orðið: „Maður endurforritast af að greinast. Ég er oft að hugsa fram í tímann en ég þarf að horfa á hver staðan mín er í dag og þarf að skipuleggja daginn út frá því. Lyfin taka ótrúlega orku frá manni.“
Bryndís segist alveg sjá fram á að fara að vinna aftur þótt mögulega verði það ekki í sama starf. „Það er náttúrulega mjög mikil ábyrgð að vera leikskólastjóri.“
„Langveikir útskrifast líka hjá okkur en æskilegt er að skjólstæðingar nái fyrst stöðugleika í sínu ferli,“ segir Louisa. „Þegar fólk útskrifast þá er mikilvægt að tengja það í sitt umhverfi og það sé komið með plan.“ Louisa bendir á að fólk sem sækir Ljósið myndi oft tengsl innanhúss og að það hafi myndast hópar sem haldi áfram að vera í samskiptum eftir útskrift.
En svona þegar við förum að enda viðtalið, Bryndís, hvaða lærdóm geturðu dregið af að greinast með krabbamein?
„Ég er mjög jákvæð og lausnamiðuð að eðlisfari sem hefur nýst mér mjög vel í þessu ferli. Eftir að ég greindist þá finn ég að jákvæðnin er raunverulega þarna, ég á auðvelt með að sjá jákvæðar hliðar á þessu verkefni þótt þetta sé ekki verkefni sem ég valdi mér. Þetta er sjúkdómur sem kippir manni á jörðina og það þarf að endurmeta marga hluti í lífinu. Maður velur sér hluti og svo sér maður hvað vinir og fjölskylda er dýrmæt. Þetta er náttúrulega lífsbjargandi staður að vera í Ljósinu, það verður aldrei sagt nógu oft. Ég held að maður verði betri manneskja af að vera hérna.“