Ljósablaðið

1. TBL. 20. ÁRG 2026

Árið að baki í Ljósinu 2026

Höfundar

Regína Björk Jónsdóttir

Íris Frímannsdóttir

Ljósmyndari

Ýmsir

Það er virkilega skemmtilegt að renna í gegnum augnablikin stór sem smá sem við höfum átt með fólkinu okkar. Augnablikin eru mörg og dýrmæt í Ljósinu á degi hverjum en hér stiklum við á stóru.

Fyrsti mánuður ársins þaut hjá með ógnarhraða og rútínan náði takti.

  • Seldum treyjuna -uppboð -
  • Stemning fyrir EM í handbolt

Febrúar:

  • Bolludagurinn er alltaf vinsæll í Ljósinu og eitthvað svo notalegt að kjamsa á góðri rjómabollu í góðra vina hópi.
  • Öskudagurinn er svo alltaf tekin hátíðlega og mættu bæði starfsfólk og þjónustuþegar sem allskyns furðuverur þann dag.
  • Framkvæmdir hófust í Gylfaflöt 5.

maí

  • Við héldum skemmtilegt útgáfuhóf í Landsbankanum í maí þegar við ýttum af stað samstarfinu við Hlín Reykdal og hófum sölu á Skarti sem skiptir máli. Það var fullt út að dyrum, mikil gleði og salan fór fram fram úr okkar björtustu vonum.

Júní

  • Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga og forsvarsfólk Ljóssins skrifuðu undir nýjan langtímasamning til fjögurra ára um endurhæfingarþjónustu fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. Mikill gleðidagur og var fagnað dátt og klappað af viðstöddum.

Árlega fjölskylduganga Ljóssins fór fram í júní og í ár hittumst við í Gufunesinu. Að göngu lokinni var boðið upp kleinur og nýbakað brauð frá okkar bestu konum í eldhúsinu.

Stór hluti af endurhæfingu Ljóssins er í gegnum handverk og hefur það verið frá upphafi. Það er svo gott að gleyma sér og hvíla hugann í að skapa. Mörg hafa fundið ný og óvænt áhugamál hér sem fylgja þeim svo áfram eftir útskrift.

ágúst

  • Við buðum ljósberum og vandamönnum að koma og búa til persónuleg skilti,skreyta bolli, sokka og derhúfur til að hvetja áfram sína hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu. Þetta sló í gegn og verður eflaust árlegt hjá okkur hér eftir.

Reykjavíkurmaraþonið var á sínum stað í ágúst og þökk sé frábærum einstaklingum og hópum sem hlupu fyrir Ljósið þá slógum við met í áheitum og söfnun. Við erum svo þakklát fyrir fallega Ljósasamfélagið að það er erfitt að koma því í orð.

Flottasta klappstöðin í maraþoninu var fjölmenn og þar var klappað, knúsað og dansað til að hvetja áfram okkar bestu hlaupara.

Vá hvað þið eruð frábær öll sem eitt og við þakklát fyrir bestu hlauparana og klappstýrurnar !

Sept

  • Við tókum að sjálfsögðu þátt í Treyjudeginum í september en styrktarfélagið Börn með krabbamein stendur fyrir deginum.
  • Við byrjuðum að pakka niður fyrir flutningana í Gylfaflöt og fluttum inn í lok septembermánaðar.

Stuðningur einstaklinga og félaga við starfsemi Ljóssins skiptir gríðarlegu máli.

Okkkur þykir smella af þegar einstaklingar og fyrirtæki koma til okkar. Hér má sjá brot af þeim myndum sem við höfum náð að smella af það sem af er ári. Máttur samfélagsins er ómetanlegur og skiptir sannarlega sköpun fyrir þau sem greinast með krabbamein.