Vestfirskur orkubolti
Róbert er 54 ára gamall og ólst upp í Hnífsdal, rúmlega 200 manna bæjarfélagi á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur. Hann byrjaði snemma að vinna fyrir sér, í bæjarvinnu og frystihúsi. Spurður segist hann aldrei hafa farið á sjóinn, ekki í þeirri merkingu eins og flestir þekkja sjómennsku heldur var hann í Björgunarsveitinni Tindum og þurftu þeir stundum róa út þegar skipin voru að koma í land í mikilli brælu. Þess er einnig vert að geta að Róbert tók þátt í björgunaraðgerðum í snjóflóðunum á Súðavík og Flateyri.
„Eftir á að hyggja var þetta góður skóli en það fóru margir mjög illa út úr þessu, ekki bara þeir sem lentu í flóðunum heldur líka félagar í björgunarsveitunum. Þetta var náttúrulega fyrir tíma áfallahjálpar.“
Róbert bjó og starfaði fyrir vestan í 25 ár. Hann kynntist Rúnu þegar þau störfuðu á Sjallanum á Ísafirði og hefur verið giftur henni í 30 ár.
„Við eigum þrjár fallegar, uppkomnar dætur og tvö barnabörn. Þannig að lífið er mjög ljúft.“
Með grunnskólamenntun í farteskinu vissi Róbert ungur að hann byggi yfir frábærum hæfileika sem sölumaður og var sérlega góður í samskiptum. Þegar hann komst ekki á samning þegar hann lærði til rafvirkja sá hann að hann þyrfti að feta nýjar slóðir. Fljótlega hóf hann störf hjá Würth, alþjóðlegu fyrirtæki með vinnufatnað og verkfæri, og var þar í ein tuttugu ár.
„Það var gaman að komast þar inn ekki með neina menntun,“ segir Róbert, sem hóf MBA-nám innan fyrirtækisins; Würth Business Academy og fékk í kjölfarið stöðu í Kína.
„Það var mjög áhugavert. Ég hefði ekki viljað missa af þessu.“ Fjölskyldan kom heim aftur þegar faðir Róberts greindist með krabbamein og náðu þau nokkrum vikum áður en hann kvaddi.
„Það er búið að skrifa þetta handrit fyrir okkur,“ segir Róbert sem hefur mikla trú á að hlutirnir séu nákvæmlega eins og þeir eigi að vera. Eftir að þau fluttu heim brast kórónaveirufaraldurinn á og prísuðu þau sig sæl að vera stödd hérlendis þegar allt lokaði í Kína og fólk fékk ekki að fara út fyrir hússins dyr.
Róbert hóf þá störf hjá Landsbjörg og sá um sölu- og markaðsmál þar. En eftir aðeins eitt ár í starfi fór hann í kulnun.
„Fyrir Duracell-kanínu eins og mig var erfitt að þurfa að læra að vera veikur. Eftir á að hyggja veit ég að verið var að undirbúa mig fyrir krabbameinið. Þetta eru allt sömu einkenni, þú ert með kvíða, þunglyndi, þú ert orkulaus. Þótt börnát sé mjög ólíkt krabbameini þá eru andlegu einkennin mjög svipuð.“
Eftir að hafa náð sér af kulnuninni fór Róbert að vinna fyrir Bosch og seldi þar verkfæri í samstarfi við Byko.
„Það var svo í mars eða apríl í fyrra að ég fer aftur að finna svipuð einkenni og í börnátinu.“