Næring er mikilvægur hluti af endurhæfingunni í Ljósinu. Á virkum dögum er boðið upp á næringarríkan og ljúffengan grænmetismat í hádeginu sem Ljósberar og aðstandendur þeirra geta notið.
Í Ljósinu starfar næringarfræðingurinn Lilja Guðmundsdóttir, sem veitir ráðgjöf og fræðslu um næringu. Lilja hefur tekið saman nokkrar einfaldar og gómsætar uppskriftir sem vonandi veita ykkur innblástur í eldhúsinu.
Rauðrófusalat
Uppskriftin miðar við 6-8skammta.
Hráefni
1 stór rauðrófa
70 g vegan majónes
Aðferð
- Sjóðið rauðrófuna ~40 mínútur, eða þangað til hún er orðin mjúk í gegn og leyfið henni að kólna vel.
- Flysjið hana því næst og skerið í litla teninga, eða um 1 cm x 1 cm x 1 cm.
- Setjið í skál og hrærið majónesinu saman við.
Ábendingar
Ekkert vegan majónes: Notið venjulegt majónes í staðinn.
Minni fita: Skiptið hluta af majónesinu út fyrir sýrðan rjóma eða gríska jógúrt.
Tegund máltíðar: Þessi uppskrift er hugsuð sem meðlæti.
Næringargildi í 100 g:
Orka: 134 kkal
Fita: 11 g
Kolvetni: 8,5 g
- Þar af sykurtegundir: 6,1 g
Trefjar: 2,4 g
Prótein: 1,4 g
Salt: 0,3
Fólat: 92,8 µg
Kalíum: 277 mg
Járn: 0,7 mg
Einfaldur kaldur grautur með jarðarberjum
Uppskriftin miðar við 1 skammt.
Hráefni
1 dl hafrar
1 msk chia fræ
¼ tsk kanill, malaður
1 klípa sjávarsalt
100 g vanilluskyr
1 dl mjólk að eigin vali
Aðferð
- Setjið öll þurrefni í loftþétt ílát og blandið vel saman.
- Bætið restinni af hráefnunum útí ílátið og hrærið öllu vel saman. Geymið í ísskáp yfir nótt.
- Hrærið öllu vel saman daginn eftir svo að safinn úr þiðnu jarðarberjunum blandist vel inní grautinn.
Ábendingar
Tegund máltíðar: Þessi uppskrift gæti hentað sem millimál, en hægt væri að orkubæta hana eftir leiðunum hér að neðan til að hún henti sem stoðmáltíð.
Meira prótein: Bætið við vanillu próteindufti eða meira af skyri.
Meiri fita: Toppið með hnetu- eða möndlusmjöri hrærið saman við grautinn.
Næringargildi í einum skammti:
Orka: 343 kkal
Fita: 7,6 g
Kolvetni: 48,1 g
- Þar af sykurtegundir: 16,4 g
Trefjar: 7,9 g
Prótein: 21,4 g
Salt: 0,5 g
Kalk: 301 mg
Járn: 3,4 mg
Fosfór: 343 mg
Magnesíum: 102 mg
Döðlukaka
Uppskriftin miðar við 8 skammta.
Hráefni
220 g döðlur
2 msk mulin hörfræ
1 tsk matarsódi
120 g smjör (eða vegan smjör)
4 msk sykur
100 g hveiti
1 tsk kanill
1/2 tsk salt
1/2 tsk vanillusykur
2 tsk lyftiduft
2 msk sítrónusafi
Karamellusósa
70 g smjör eða kókosolía
100 ml rjómi eða kókosrjómi
60 g púðursykur
Aðferð
- Stillið ofninn á 170°C.
- Setjið döðlurnar í pott og látið vatn fljóta yfir. Takið pottinn af hellunni þegar vatnið nær suðu og hrærið hörfræjum saman við. Látið standa í 3 mín.
- Blandið matarsóda við döðlumaukið og látið kólna.
- Þeytið saman smjör og sykur. Blandið þurrefnum saman og hrærið saman við döðlumaukið.
- Setjið deigið í kökuform og bakið í 15-25 mín.
- Undirbúið sósuna á meðan kakan bakast. Bræðið smjör, sykur og rjóma saman í potti. Hrærið þangað til hafið náð góðri þykkt á karamellunni (~2-4 mín). Leyfið henni að kólna örlítið áður en þið hellið yfir kökuna.
Ábendingar:
Minni sykur: Sleppið karamellusósunni. Hægt að toppa með rjóma / skyri / grískri jógúrt og ferskum berjum í staðinn.
Næringargildi í einum skammti:
Orka: 404 kkal
Fita: 25 g
Kolvetni: 42,4 g
- Þar af sykurtegundir: 31,6 g
Trefjar: 3,2 g
Prótein: 3,1 g
Salt: 1,4 g
Eggjabaka með heilkornabotni og grænmeti
Uppskriftin miðar við 6 skammta.
Hráefni
Botninn
240 g heilkorna hveiti
1 tsk salt
100 g kalt vatn
100 g ólífuolía
Fylling
1 rauðlaukur
4 geirar hvítlaukur
90 g sveppir
50 g paprika
30 g spínat
1 msk ferskt rósmarín, saxað
50 g salatostur
1 tsk timían, þurrkað
8 stór egg
1 dl mjólk
50 g rifinn ostur
Salt & pipar eftir smekk
Aðferð
- Forhitið ofninn í 180°C og blástur.
- Blandið hveiti og salti saman í meðalstórri skál. Pískið því næst olíu og kalt vatn saman í lítilli skál þar til blandan þykknar. Hellið vökvablöndunni út í þurrefnin og blandið vel saman. Notið hendurnar til að hnoða deigið og móta kúlu.
- Stráið smá hveiti á hreina borðplötu og fletjið deigið út með kökukefli. Færið það yfir á kökudiskinn og notið puttana til að pressa deiginu upp með hliðunum á disknum svo það myndi kant. Bakið botninn í 15 mínútur.
- Undirbúið hráefnin. Saxið lauk og hvítlauk, skerið sveppi í sneiðar og papriku í litla bita. Skolið spínat, saxið rósmarín og skerið salatost í teninga.
- Hitið olíu á pönnu yfir miðlungshita. Steikið lauk og hvítlauk þar til byrjar að mýkjast. Bætið þá sveppum og papriku út á pönnuna og kryddið með timían ásamt salti og pipar eftir smekk. Bætið að lokum spínati út á pönnuna og steikið þar til mjúkt. Dreifið grænmetisblöndunni jafnt yfir botninn.
- Pískið egg saman í skál. Bætið því næst rósmarín og salatosti útí og hrærið vel saman. Saltið og piprið eftir smekk. Hellið eggjablöndunni jafnt yfir botninn og grænmetið.
- Setjið inn í ofn og bakið í 25 mínútur. Takið þá bökuna út úr ofninum, stráið ostinum yfir og bakið í 10 mínútur í viðbót. Njótið!
Uppástungur
Meiri fjölbreytni: Prófið ykkur áfram með mismunandi grænmeti, t.d. brokkólí, blómkál, gulrætur eða annað.
Mjólkurlaust: Sleppið mjólkinni, salatostinum og rifna ostinum.
Næringargildi í einum skammti:
Orka: 354 kkal
Fita: 22,3 g
Kolvetni: 26 g
- Þar af sykurtegundir: 2,5 g
Trefjar: 3,9 g
Prótein: 14,7 g
Salt: 1,2 g
B-12 vítamín: 0,8 µg
K-vítamín: 43,4 µg
Fosfór: 274,8 mg
Selen: 27,9 µg
Sykurlaust granóla
Uppskriftin miðar við 8 skammta.
Hráefni
100 g ferskar döðlur
50 g vatn
40 g möndlusmjör
1 tsk kanill
1 tsk vanilludropar
2 klípur salt
100 g hafrar
20 g mulin hörfræ
25 g pekanhnetur
40 g sólblómafræ
40 g kasjúhnetur
Aðferð
- Stillið ofninn á 150°C og blástur.
- Fjarlægið steinana innan úr döðlunum og setjið í matvinnsluvél ásamt vatni, möndlusmjöri, kanil, vanilludropum og salti. Látið ganga þar til jöfn og mjúk áferð næst. (ATH! Í sumum tilfellum þarf að byrja á því að stoppa matvinnsluvélina af og til og skrapa niður meðfram hliðum),
- Saxið hnetur og hellið í skál ásamt höfrum, sólblómafræjum og muldum hörfræjum. Blandið öllu vel saman.
- Hellið því næst döðlumaukinu út í skálina með þurrefnunum og blandið öllu vel saman. Gott er að nota hendurnar til að hnoða döðlumaukinu vel saman við þurrefnin.
- Settu bökunarpappír á bökunarplötu og dreifðu vel úr granólablöndunni.
- Bakaðu við 150°C í 20 mínútur. Hrærðu þá vel í blöndunni og gættu þess að færa það sem er á jöðrunum inn að miðju, og öfugt.
- Haltu áfram að baka í 20-25 mínútur í viðbót. Athugaðu á tíu mínútna fresti og hrærðu í, svo jaðrarnir brenni ekki. Granólið er tilbúið þegar það er orðið gyllt, þurrt og stökkt.
- Taktu plöturnar úr ofninum og leyfðu granólinu að kólna í minnst 15 mínútur, það verður enn stökkara við kælingu.
- Geymist í loftþéttu íláti eða krukku.
Ábendingar
Öðruvísi hnetur og fræ: Hægt er að nota hvaða hnetur og fræ sem er, notið það sem þið eigið. Passið einfaldlega að magnið endurspegli nokkurn veginn magnið í uppskriftinni.
Næringargildi í einum skammti:
Orka: 184 kkal
Fita: 10,8 g
Kolvetni: 18,4 g
- Þar af sykurtegundir: 4,9 g
Trefjar: 3,5 g
Prótein: 5,5 g
Salt: 0,1 g
B1-vítamín: 0,2 mg
E-vítamín: 2,8 mg
Kalíum: 229 mg
Sink: 1,3 mg
Rautt pestó
Uppskriftin miðar við 8 skammta.
Hráefni
100 g kasjúhnetur
30 g döðlur
100 g sólþurkkaðir tómatar í olíu
30 g olía
1/2 tsk (2 g) salt
½ tsk (1 g) pipar
½ tsk (2 g) chili mauk
Fersk steinselja og / eða basilika eftir smekk
Aðferð
Byrjið á því að baka kasjúhnetur við 100°C í 20 mínútur. Setjið því næst öll hráefni í matvinnsluvél og látið ganga þar til allt er smátt skorið og hráefnin hafa blandast vel saman. Þið gætuð þurft að stoppa matvinnsluvélina af og til og skafa niður meðfram hliðum. Ef þið eigið ekki matvinnsluvél er einnig hægt að saxa öll hráefni smátt og blanda saman í skál.
Næringargildi í einum skammti:
Orka: 129 kkal
Fita: 10 g
Kolvetni: 8,9 g
- Þar af sykurtegundir: 3,7 g
Trefjar: 1,7
Prótein: 2,6 g
Salt: 0,6 g
Fosfór: 69 mg
Kalíum: 105,4 mg
Magnesíum: 33 mg