Ljósablaðið

1. TBL. 20. ÁRG 2026

Ráðstefna um sjúkraþjálfun fyrir krabbameinsgreinda

Höfundur

Áslaug Helga Aðalsteinsdóttir

Ljósmyndari

Hulda Margrét

Sjúkraþjálfun vegna úttaugaeinkenna

Um miðjan apríl á þessu ári héldu þjálfarar Ljóssins til Dublin og sóttu þar ICPTO-ráðstefnu um endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda. ICPTO stendur fyrir International Conference on Physiotherapy in Oncology og var þetta í fjórða skiptið sem slík ráðstefna er haldin. Daginn fyrir ráðstefnuna var í boði að sækja dagnámskeið í endurhæfingu tengdri sértækum aukaverkunum. Á ráðstefnunni sjálfri voru haldnir fjölmargir fyrirlestrar og kynningar á rannsóknum. Til að fá sem mest út úr ferðinni reyndum við þjálfararnir að dreifa okkur á mismunandi námskeið og fyrirlestra.

Undirrituð sótti námskeið um forvörn og meðhöndlun úttaugaeinkenna (Chemotherapy Induced Peripheral Neuropathy). Áætlað er að 30-40% þeirra sem fara í lyfjameðferð vegna krabbameins verði fyrir taugaskaða sem veldur meðal annars dofa og skyntruflunum í höndum og fótum, brunatilfinningu, viðkvæmni fyrir kulda, tapi á vöðvastyrk og/eða truflun á jafnvægi og samhæfingu. Þetta eru allt einkenni sem þjálfarar Ljóssins heyra reglulega um frá þjónustuþegum. Erfitt getur reynst að mæla úttaugaeinkenni þar sem þau eru mjög fjölbreytileg og upplifunin ólík á milli einstaklinga. Breytingar geta þó komið fram í mælingum á vöðvamassa, vöðvastyrk og mati á jafnvægi og færni. Einkar alvarleg afleiðing þessara einkenna getur verið aukin fallhætta. Sem betur fer minnka eða lagast einkennin oft með tímanum en sumir þurfa að læra að lifa með ákveðnum langvinnum skerðingum.

Helstu ráðleggingar til að lágmarka og vinna gegn úttaugaeinkennum eru æfingar og skynörvun af ýmsu tagi. Sérstaklega á að leggja áherslu á styrktarþjálfun, auk æfinga sem reyna á jafnvægi, stöðugleika og samhæfingu. Öll örvun fyrir skyntaugar getur verið hjálpleg; svo sem að vinna með leir, örva taugaenda með gaddabolta eða gaddabretti, þreifa á hlutum með ólíkri áferð (t.d. hnetum, svampi, mismunandi efnum) og nudda hendur og fætur. Allt sem hér er minnst á má finna í fjölbreyttri endurhæfingu Ljóssins.

Þegar við sækjum námskeið eða ráðstefnur, hérlendis og erlendis, áttum við okkur á hversu framarlega Ljósið stendur á heimsvísu í endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda. Það sem er einkennandi fyrir Ljósið er að á einum og sama staðnum er boðið upp á heildræna endurhæfingu, líkamlega og sálfélagslega, auk þess sem aðstandendur fá stuðning. Eins þykir sjálfstæði Ljóssins einstakt, það er að við erum ekki deild innan spítala.

Fimmta ráðstefna ICPTO verður í Granada á Spáni í apríl, 2028. Þá munu þjálfarar Ljóssins aftur fjölmenna til að halda sér upplýstum um allt það nýjasta í endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda.