Fagmennska fram í fingurgóma
Jóna Hrönn byrjaði í endurhæfingu hjá Ljósinu í ágúst, 2025. Þar hitti hún iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara og fór í stöðumat. Hún segir það hafa hjálpað sér að hafa markmið í þjálfuninni en á heilu ári hafi þol og styrkur verið mældur þrisvar sinnum.
„Ég er mikil keppnismanneskja svo þetta hentaði mér prýðisvel. Þegar ég útskrifaðist var ég búin að vinna upp vöðvamassann og þolið. Það hafði mikil áhrif. Innan Ljóssins var mikil hvatning, fagmennska og umhyggja frá starfsfólki. Sjúkraþjálfararnir eru líka stórkostlegir.“
Jóna Hrönn mætti einnig í hjólatíma í tækjasalnum og keypti sér nudd, sem hún segir hafa verið himneskt fyrir sig. Að auki hafi maturinn hjá Ljósinu verið algjörlega frábær.
Hvernig horfir lífið við þér eftir útskrift úr Ljósinu?
„Ég byrjaði að vinna í febrúar á þessu ári og útskrifaðist úr Ljósinu í lok apríl. Ég hafði fengið mikla hvatningu og varnaðarorð hjá rágjöfum Ljóssins og það var mjög mikilvægt.“
Það tekur á að vinna upp þol og styrk eftir svo harða meðhöndlun sem stofnfrumumeðferðin er. Jóna Hrönn lýsir sjálfri sér sem „algjöru flaki“ meðan á meðferðinni stóð og að um tíma hafi hún þurft að styðjast við göngugrind. Minnisleysið sem fylgdi hafi þó verið meiri áskorun. Jóna Hrönn segist alltaf hafa haft góða yfirsýn yfir verkefni sín í krefjandi og fjölbreyttu starfi. Minnistapið hafi gert hana óttaslegna en að með tímanum hafi það þó farið batnandi.
„Þessi tvö ár eru eitthvert mesta lærdómsferli sem ég hef farið í gegnum.“
Hvernig horfir lífið við þér í dag?
„Auðvitað eldist maður og svona meðferð er ekki til að byggja mann upp. Maður þarf að lifa reglubundnu lífi og passa upp á svefn, mataræði og hreyfingu. Ef ég vinn of mikið þá finn ég að það kemur í bakið á mér og ég verð ótrúlega þreytt. Ég er lengur að ná mér aftur í jafnvægi. Ég þarf að lifa einfaldara lífi núna, sérstaklega hvað varðar að endurheimta orku.“
Hún bætir við að henni finnist gott að fara í göngutúra, í þeim felist viss hvíld. Annars segir hún lykilinn að líkamlegum styrk vera að lyfta lóðum. Það hafi hún gert síðan 1995 og að það hafi hjálpað heilmikið til í bataferlinu.
Andlega styrkinn sækir Jóna Hrönn m.a. í samferðamenn sína og að gefa áfram til samfélagsins. Á erfiðum tíma, meðan á meðferðinni stóð og strax í kjölfarið, segir Jóna Hrönn að bænahópur kvenna í Vídalínskirkju hafi beðið svo trúfastlega fyrir henni, ásamt mörgum fleirum. Nú í nóvember er að koma út bænabók eftir hana sem Skálholtsútgáfa gefur út og hún tileinkar bókina bænahópnum.
Þá voru haldnir styrktartónleikar; Bleikur djass, í Vídalínskirkju, sunnudaginn 25. október. Þar stigu frábærir tónlistarmenn á stokk og fluttu djassskotna sálma.
„Agnar Már Magnússon tónlistarstjóri við kirkjuna hélt utan um verkefnið og Auður Pálsdóttir sjúkrahúsprestur hélt erindi, en hún greindist sjálf með krabbamein. Með henni var systir hennar Guðbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur og aðstandandi.“
Allur ágóði sem safnaðist á tónleikunum var látinn renna til Ljóssins. Sambærilegir tónleikar voru einnig haldnir í kirkjunni í fyrra til styrktar Ljósinu: „Þetta er einskonar endurgjöf því Ljósið er stórkostlegt starf fyrir íslenskt samfélag.“
Undir lok viðtalsins tiltekur Jóna Hrönn það sem kjarnar batann og baráttuandann í henni: „Við getum valið hvort við tökum sjúkdómi okkar sem auðmýkingu eða sem tækifæri til að læra auðmýkt. Eftir erfiða meðferð átti ég val um hvort ég ætlaði að leggja mitt af mörkum til að brölta á fætur og endurheimta þá heilsu sem mér kynni að lánast að nýju. Hvern morgun, sem Guð gefur mér að vakna, heilsa ég lífinu með þakklæti meðvitaðri en nokkru sinni um, að mér var veitt líf. Eða, kannski væri nær að segja að lífinu hafi verið veitt til mín af ótal starfandi höndum héðan og þaðan úr heiminum; hvítum, svörtum, brúnum og gulum. Sérfræðingar, sem með einum hug en á mörgum tungumálum, unnu að velferð minni. Og ótaldar greipar voru spenntar í bæn svo ég fann mig borna á bænarörmum. Það er reynsla sem aldrei gleymist.“