Næring er mikilvægur hluti af endurhæfingunni í Ljósinu. Í hádeginu á virkum dögum er boðið upp á næringarríkan og ljúffengan grænmetismat sem Ljósberar og aðstandendur geta notið.
Í Ljósinu starfar næringarfræðingurinn Lilja Guðmundsdóttir, sem veitir ráðgjöf og fræðslu um næringu. Lilja hefur tekið saman nokkrar einfaldar og gómsætar uppskriftir sem vonandi veita ykkur innblástur í eldhúsinu.
Rauðrófusalat
Uppskriftin miðar við 6-8 skammta.
Hráefni
1 stór rauðrófa
70 g vegan majónes
Aðferð
- Sjóðið rauðrófuna í ~40 mínútur, eða þangað til hún er orðin mjúk í gegn og leyfið henni að kólna vel.
- Því næst, flysjið rauðrófuna og skerið í litla 1 cm teninga.
- Setjið í skál og hrærið majónesinu saman við.
Ábendingar
Ekkert vegan majónes: Notið venjulegt majónes í staðinn.
Minni fita: Skiptið hluta af majónesinu út fyrir sýrðan rjóma eða gríska jógúrt.
Næringargildi í 100 g:
Orka: 134 kkal
Fita: 11 g
Kolvetni: 8,5 g
- Þar af sykurtegundir: 6,1 g
Trefjar: 2,4 g
Prótein: 1,4 g
Salt: 0,3
Fólat: 92,8 µg
Kalíum: 277 mg
Járn: 0,7 mg
Döðlukaka
Uppskriftin miðar við 8 skammta.
Hráefni
220 g döðlur
2 msk mulin hörfræ
1 tsk matarsódi
120 g smjör (eða vegan smjör)
4 msk sykur
100 g hveiti
1 tsk kanill
1/2 tsk salt
1/2 tsk vanillusykur
2 tsk lyftiduft
2 msk sítrónusafi
Karamellusósa
70 g smjör eða kókosolía
100 ml rjómi eða kókosrjómi
60 g púðursykur
Aðferð
- Stillið ofninn á 170°C.
- Setjið döðlurnar í pott og látið vatn fljóta yfir. Takið pottinn af hellunni þegar vatnið nær suðu og hrærið hörfræjum saman við. Látið standa í 3 mín.
- Blandið matarsóda við döðlumaukið og látið kólna.
- Þeytið saman smjör og sykur. Blandið þurrefnum saman og hrærið saman við döðlumaukið.
- Setjið deigið í kökuform og bakið í 15-25 mín.
- Undirbúið sósuna á meðan kakan bakast. Bræðið smjör, sykur og rjóma saman í potti. Hrærið þangað til hafið náð góðri þykkt á karamellunni (~2-4 mín). Leyfið henni að kólna örlítið áður en þið hellið yfir kökuna.
Ábendingar:
Minni sykur: Sleppið karamellusósunni. Hægt að toppa með rjóma / skyri / grískri jógúrt og ferskum berjum í staðinn.
Næringargildi í einum skammti:
Orka: 404 kkal
Fita: 25 g
Kolvetni: 42,4 g
- Þar af sykurtegundir: 31,6 g
Trefjar: 3,2 g
Prótein: 3,1 g
Salt: 1,4 g
Sykurlaust granóla
Uppskriftin miðar við 8 skammta.
Hráefni
100 g ferskar döðlur
50 g vatn
40 g möndlusmjör
1 tsk kanill
1 tsk vanilludropar
2 klípur salt
100 g hafrar
20 g mulin hörfræ
25 g pekanhnetur
40 g sólblómafræ
40 g kasjúhnetur
Aðferð
- Stillið ofninn á 150°C og blástur.
- Fjarlægið steinana innan úr döðlunum og setjið í matvinnsluvél ásamt vatni, möndlusmjöri, kanil, vanilludropum og salti. Látið ganga þar til jöfn og mjúk áferð næst. (Ath! Í sumum tilfellum þarf að byrja á því að stoppa matvinnsluvélina af og til og skrapa niður meðfram hliðum).
- Saxið hnetur og hellið í skál ásamt höfrum, sólblómafræjum og muldum hörfræjum. Blandið öllu vel saman.
- Hellið því næst döðlumaukinu út í skálina með þurrefnunum og blandið öllu vel saman. Gott er að nota hendurnar til að hnoða döðlumaukið vel saman við þurrefnin.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og dreifið vel úr granólablöndunni.
- Bakið við 150°C í 20 mínútur. Hrærið þá vel í blöndunni og gætið þess að færa það sem er á jöðrunum inn að miðju, og öfugt.
- Haldið áfram að baka í 20-25 mínútur í viðbót. Athugið á tíu mínútna fresti og hrærið í, svo jaðrarnir brenni ekki. Granólað er tilbúið þegar það er orðið gyllt, þurrt og stökkt.
- Takið plöturnar úr ofninum og leyfið granólanu að kólna í minnst 15 mínútur, það verður enn stökkara við kælingu.
- Geymist í loftþéttu íláti eða krukku.
Ábendingar
Öðruvísi hnetur og fræ: Hægt er að nota hvaða hnetur og fræ sem er, notið það sem þið eigið. Passið einfaldlega að magnið endurspegli nokkurn veginn magnið í uppskriftinni.
Næringargildi í einum skammti:
Orka: 184 kkal
Fita: 10,8 g
Kolvetni: 18,4 g
- Þar af sykurtegundir: 4,9 g
Trefjar: 3,5 g
Prótein: 5,5 g
Salt: 0,1 g
B1-vítamín: 0,2 mg
E-vítamín: 2,8 mg
Kalíum: 229 mg
Sink: 1,3 mg
Rautt pestó
Uppskriftin miðar við 8 skammta.
Hráefni
100 g kasjúhnetur
30 g döðlur
100 g sólþurkkaðir tómatar í olíu
30 g olía
1/2 tsk (2 g) salt
½ tsk (1 g) pipar
½ tsk (2 g) chili mauk
Fersk steinselja og / eða basilika eftir smekk
Aðferð
Byrjið á því að baka kasjúhnetur við 100°C í 20 mínútur. Setjið því næst öll hráefni í matvinnsluvél og látið ganga þar til allt er smátt skorið og hráefnin hafa blandast vel saman. Þið gætuð þurft að stoppa matvinnsluvélina af og til og skafa niður meðfram hliðum. Ef þið eigið ekki matvinnsluvél er einnig hægt að saxa öll hráefni smátt og blanda saman í skál.
Næringargildi í einum skammti:
Orka: 129 kkal
Fita: 10 g
Kolvetni: 8,9 g
- Þar af sykurtegundir: 3,7 g
Trefjar: 1,7
Prótein: 2,6 g
Salt: 0,6 g
Fosfór: 69 mg
Kalíum: 105,4 mg
Magnesíum: 33 mg