Lyngvist í Ljósinu
Það kann að hljóma einkennilega að vera með námskeið þar sem hvorki liggur fyrir skýr dagskrá né nákvæm skilgreining á hvað fólk komi til með að læra.Tilgangur útinámskeiða Ljóssins er að fylla þátttakendur innblæstri svo hver og einn þeirra taki með sérþað sem hann vill. Í hverjum tíma býðst fólki að gera æfingar sem við leiðbeinendurnir leggjum fyrir. Æfingarnar eru valkvæðar en við hvetjum alla til að prófa, að því marki sem fólk vill og treystir sér til. Lífið er fullt af skyldum svo ekki sé talað um allar kröfurnar sem fylgja meðferðum og endurhæfingu; andlega, líkamlega og félagslega. Útinámskeiðin okkar eru og hafa alltaf verið hugsuð sem mótvægi við allt sem þarf að gera og veita þátttakendum frelsi til að vera, án þrýstings til að gera.
Þegar fyrsta útinámskeið Ljóssins fór af stað í byrjun maí 2020 fór öll starfsemin fram í gegnum netið og síma vegna kórónaveirufaraldursins. Með því að hafa námskeið úti í náttúrunni var hægt að komast hjá samkomutakmörkunum og þátttakendur gátu upplifað sig öruggari undir berum himni. Árin á eftir voru námskeiðin haldin reglulega á sumrin og veturna, undir nafninu Lyngvist:Tvær til þrjár klukkustundir í senn og voru tímarnirýmist stakir eða nokkrir samhangandi, t.d. fjórir þriggja klukkustunda tímar á jafnmörgum vikum, með samblöndu náttúrumeðferðar og listsköpunar. Sama hvað námskeiðin voru löng (eða stutt) var endurgjöfin alltaf á þá leið að þátttakendum langaði í fleiri tíma og lengri æfingar.
Náttúrunæring á endurhæfingarhlaðborð Ljóssins
Síðastliðið sumar fór nýtt námskeið af stað hjá Ljósinu, byggt á sambærilegum grunni og Lyngvist, að viðbættri hugmyndafræði skógarbaða (shinrin-yoku), nútvitundar og kawalíkansins. Námskeiðið fékk nafnið Náttúrunæring og var í umsjón okkar Sólveigar Hlínar Kristjánsdóttur sálfræðings og Helgu Jónu Sigurðardóttur, iðjuþjálfa og fjölskyldumeðferðarfræðings. Það komust færri að en vildu og því er stefnt er að því að halda fleiri námskeið í vetur og næsta sumar. Endurgjöfin hefur verið sú sama og áður, fólk vill lengri námskeið og fleiri tíma.
Námskeiðin eru frábær viðbót við endurhæfingarhlaðborð Ljóssins og eru hugsuð sem hluti af ferlinu. Þau eru í samræmi við hugmyndafræði starfseminnar og það skiptir engu máli hvort fólk er nýbyrjað eða um það bil að útskrifast. Markmið tímanna er að kenna þátttakendum að njóta náttúrunnar svo þeir öðlist aukinn styrk, bætt sjálfstraust, betri sjálfsmynd og fái verkfæri til að halda því áfram þegar endurhæfingu lýkur. Í tímunum kanna þátttakendur gróið landslag, án mannlegrar uppbyggingar eins og hægt er, á rólegan og afslappaðan hátt þar sem skynjun stýrir ferðinni.
Útivera, athygli og hvíld
Hjá Ljósinu er fólk hvatt til að huga að undirstöðu góðrar heilsu með því að gæta að hreyfingu, svefni og næringu en að auki er fólki boðið að nýta hvíld, útiveru og tengsl til að ýta undir vellíðan.
Hvíld getur oft og tíðum verið misskilin, t.d. getur falist ákveðið áreiti í þeirri „hvíld“ að liggja uppi í sófa og skrolla á samfélagsmiðlum. Sömuleiðis gleymist oft hvað útivist hefur góð áhrif á okkur, andlega og líkamlega:Einfaldlega að fara út, vera úti, án þess að þurfa að gera eitthvað. Margir fara í gönguferðir með markmið um ákveðinn fjölda kílómetra og fylgjast með hjartslættinum, tímanum eða hraðanum í úrinu. Sumum finnst ekki taka því að reima á sig gönguskóna án þess að fara upp að Steini.
Í stóra samhenginu þarf ekki að rembast til að njóta góðs af útiveru. Rannsóknir sýna að útivera hefur góð áhrif á huga og líkama. Náttúran veitir skjól og líkaminn slakar ósjálfrátt á þegar ferðast er rólega um svæðið, þegar ekki er gerð krafa um einhvers konar virkni. Hugurinn fær hvíld, áreiti er í lágmarki og endurheimt verður betri. Rannsóknir sýna einnig að námskeið, svipuð Náttúrunæringu, hafa aukið sjálfstraust þátttakenda, létt lundina, aukið á einbeitingu og tengslamyndun og lækkað blóðþrýsting, auk þess sem dregur úr hugarangri og neikvæðum hugsunum. Nýjar rannsóknir í umhverfistaugavísindum sýna einnig að einstaklingar sem leysa verkefni eftir að hafa varið tímaí náttúrunni gerir það auðveldar og hraðar en þeir sem fá sömu verkefni eftir að hafa varið tíma innandyra. Einstaklingar mælast með mun betri athygli eftir að hafa varið aðeins nokkrum mínútum í kringum tré, blóm og við læki, samanber jafnlöngum tíma á malbiki, innan um bíla. Þessum rannsóknum ber einnig saman um að einstaklingar þurfi ekki að hafa einstakan áhuga á náttúrunni til að njóta góðs af henni. Þeir þurfa ekki að dásama hvassviðri og stingandi haglél til að útiveran geri þeim gott. Eina sem skiptir máli er að klæða sig eftir veðri.
Og hvað með veðrið?
Veðrið, í allri sinni mynd, er órjúfanlegur hluti þess að stunda útiveru. Á Náttúrunæringarnámskeiðinu í október fékk hópurinn að takast á við alls kyns veður; allt frá slagviðri, slyddu, súld yfir í logn, sól og heiðskíran himinn. Það leit út fyrir að fyrsta tímanum yrði frestað vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar en í tíma tvö var fullkomið haustveður. Margar þjóðir, sérstaklega fagaðilar á sviði náttúrumeðferða, öfunda okkur Íslendinga af síbreytilegu veðrinu – að geta einfaldlega farið út á stétt og fengið um leið að takast á við einhvers konar áskorun. Að takast á við náttúruna hjálpar okkur að setja hluti í samhengi í okkar eigin lífi. Við berjumst ekki við brimið en við getum teiknað í sandinn sem aldan sléttar. Við verðum ekki pirruð yfir vetrinum heldur bíðum róleg eftir sumrinu. Það er ekki alltaf gott veður, rétt eins og það skiptast á skin og skúrir í lífinu. Við getum líka klætt af okkur veðrið, fundið okkur skjól, hlýjað okkur við arin eða kælt okkur í skugga.
Það verða fleiri Náttúrunæringarnámskeið í boði hjá Ljósinu en þangað til hvet ég alla til að kíkja út og muna eftir öllum skynfærunum. Horfa á það sem er við sjóndeildarhringinn og á það sem er við fæturna. Hvaða hljóð heyrum við? Hvaða lykt finnum við? Hvað getum við snert? En eins og alltaf, farið varlega í að smakka á náttúrunni. Veljið vel, engan gulan snjó og ekki sleikja málm ef það er frost.