Ljósablaðið

1. TBL. 20. ÁRG 2026

Ljósið

Um Ljósablaðið 2026

Höfundur

Regína Björk Jónsdóttir

Ljósablaðið 2026 er fullt af samtölum, frásögnum, myndum og fróðleik eins og alltaf.

Í ár var mikið um að vera í Ljósinu, við fórum í samstarf við Hlín Reykdal sem hannaði fallegt skart í samstarfi við Ljósið sem fjáröflun. Við slógum met í fjáröflun í Reykjavíkur maraþoninu, fluttum frá Langholtsvegi 43 í Gylfaflöt 5 og héldum áfram að bjóða upp á faglega þjónustu fyrir alla ljósberana okkar.

Við tókum tal af útskrifuðum ljósberum og núverandi ljósberum sem deildu með okkur sögum sínum og upplifun af því að greinast með krabbamein og endurhæfingunni sem þau hafa þegið í Ljósinu.

Að vanda setja fagaðilar Ljóssins mark sitt á blaðið en starfsmenn Ljóssins eru duglegir að viðhalda þekkingu sinni og bjóða upp á ný námskeið og fræða okkur hér um hin ýmsu málefni tengd endurhæfingu.

Við fáum líka að heyra frá læknum á Landspítalanum sem ræða um mikilvægi Ljóssins fyrir krabbameinsgreinda og nýja krabbameinsmiðstöð sem stendur til að opna á næstu misserum.

Við þökkum kærlega öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við vinnslu blaðsins.

Við vonum að þið njótið Ljósablaðsins í ár.

Ljósið, 1. tölublað, 20. árgangur, 2026

Útgefandi og ábyrgðaraðili:
Ljósið endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.

Gylfaflöt 5, 112 Reykjavík. Sími: 561-3770. Netfang: ljosid@ljosid.is.

Styrktarreikningur Ljóssins er: 0130-26-410420, kennitala: 590406-0740.

Ritstjórar:Regína Björk Jónsdóttir, Íris Frímannsdóttir og Guðrún Sigríður Sæmundsen.

Stjórn Ljóssins:
Ásta Einarsdóttir, lögfræðingur, Brynjólfur Eyjólfsson, viðskiptafræðingur, Hákon Jónsson, EPC verkefnastjóri og Ólöf Kristjana Bjarnadóttir, krabbameinssérfræðingur.

Varamenn: Katrín Júlíusdóttir, fv. ráðherra og ráðgjafi

Ritari: G. Haukur Guðmundssons, sjúkraþjálfari

Framkvæmdarstýra Ljóssins:
Erna Magnúsdóttir

Um merki Ljóssins

Merki Ljóssins hefur í gegnum árin verið sterk táknmynd endurhæfingarinnar í Ljósinu. Merkið er hannað af Önnu Þóru Árnadóttur og form merkisins er þríþætt:

Innsti hlutinn er logandi ljós, tákn fyrir lífið sjálft. Hvíti hluti merkisins er mannsmynd sem umfaðmar ljósið. Loks myndar ysti hlutinn skjól utan um ljósið.