Viðburðaríkt ár hjá Ljósinu
Árið 2026 hefur sannarlega verið viðburðaríkt og eftirminnilegt ár í sögu Ljóssins. Á árinu náðust stórir og veigamiklir áfangar, þar á meðal nýr langtímasamningur við Sjúkratryggingar Íslands og flutningur starfseminnar frá Langholtsvegi yfir í nýtt og glæsilegt heimili að Gylfaflöt.
Á bak við þessa stóru áfanga stendur einstaklega samhentur hópur starfsfólks sem hefur tekist á við ótal verkefni og krefjandi aðstæður af krafti, æðruleysi og jákvæðni. Þegar mikið hefur legið við hafa allir lagst á eitt og alltaf hefur verið stutt í hjálparhönd. Þrátt fyrir annríki og miklar breytingar hefur gleðin, þakklætið og tilhlökkunin yfir nýjum tækifærum verið ríkjandi.
Í gegnum allar þessar breytingar hefur leiðarljósið ávallt verið hið sama: Að sinna þjónustuþegum Ljóssins eins vel og mögulegt er og tryggja að hver og einn þeirra finni fyrir fagmennsku, hlýju, virðingu og stuðningi.
Við horfum því með miklu þakklæti yfirár og erum jafnframt full tilhlökkunar fyrir framhaldinu. Margt hefur breyst og ný tækifæri skapast, en hjartað í starfseminni og tilgangur Ljóssins haldast alltaf í hendur.
Nýr langtímasamningur markar tímamót fyrir Ljósið
Ljósið og Sjúkratryggingar Íslands gerðu á árinu nýjan fjögurra ára samning um endurhæfingu krabbameinsgreindra og stuðning við aðstandendur þeirra. Samningurinn var undirritaður 21. maí 2026 og gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2029.
Samningurinn felur í sér aukið rekstraröryggi og fyrirsjáanleika og skapar þannig traustari grunn til að skipuleggja og þróa þjónustu Ljóssins til lengri tíma. Á samningstímanum er gert ráð fyrir að 550 til 650 einstaklingar innritist árlega og að árleg hámarksgreiðsla Sjúkratrygginga verði 487,3 milljónir króna, á verðlagi ársins 2026.
Samningurinn nær til einstaklingsmiðaðrar og þverfaglegrar endurhæfingar í tengslum við krabbameinsmeðferð, auk stuðnings við aðstandendur. Markmiðið er að efla líkamlega og sálfélagslega færni, styðja við virkni og hjálpa fólki að takast á við þær breytingar sem geta fylgt krabbameinsgreiningu og meðferð.
Sérstök áhersla er jafnframt lögð á jafnt aðgengi að þjónustunni óháð búsetu, meðal annars með fjarþjónustu og fræðslu fyrir skjólstæðinga og fagfólk á landsbyggðinni.
„Þessi samningur skiptir Ljósið gríðarlega miklu máli. Hann veitir okkur það öryggi og þann fyrirsjáanleika sem þarf til að horfa fram á veginn, þróa þjónustuna áfram og mæta vaxandi þörf fyrir endurhæfingu. Umfram allt snýst þetta um að tryggja að fólk sem greinist með krabbamein og fjölskyldur þess hafi áfram aðgang að faglegri, heildstæðri og einstaklingsmiðaðri þjónustu þegar mest á reynir. Samningurinn gerir okkur kleift að byggja enn frekar á því góða starfi sem unnið hefur verið og horfa einbeitt til framtíðar.“
Samningurinn er því ekki aðeins mikilvægur fyrir rekstur Ljóssins heldur skapar hann traustari umgjörð um öfluga endurhæfingu krabbameinsgreindra sem er mikilvægur liður í íslenskri heilbrigðisþjónustu.
Frá Langholtsvegi að Gylfaflöt, nýr kafli í sögu Ljóssins
Haustið 2026 urðu önnur stór tímamót þegar Ljósið kvaddi Langholtsveg og flutti í nýtt og stærra húsnæði að Gylfaflöt 5 í Grafarvogi.
Á Langholtsveginum hafði starfsemin vaxið og þróast og þar hafði jafnframt orðið til sú sérstaka menning sem einkennir Ljósið: Fagmennska, hlýja, nánd og heimilislegt yfirbragð. Með aukinni eftirspurn eftir þjónustunni var húsnæðið hins vegar orðið of þröngt og með flutningnum að Gylfaflöt skapaðist mikilvægt tækifæri til að byggja þjónustuna enn betur upp til framtíðar.
Nýja húsnæðið býður upp á mun rýmri og betri aðstöðu fyrir líkamlega endurhæfingu, viðtöl, fræðslu, skapandi starf og samveru. Jafnframt hefur aðgengi verið stórbætt, sem og starfsaðstaða starfsfólks.
Nánar er fjallað um flutninginn, nýja húsnæðið og vegferðina frá Langholtsvegi að Gylfaflöt í ítarlegri grein annars staðar í blaðinu.
Hvítbók um endurhæfingu, mikilvægt skref til framtíðar
Árið 2026 markaði einnig mikilvæg tímamót í stefnumótun endurhæfingar á Íslandi þegar Heilbrigðisráðuneytið birti Hvítbók um endurhæfingarþjónustu.
Í Hvítbókinni er mótuð sú framtíðarsýn að endurhæfing verði samþættur og sjálfsagður hluti heilbrigðisþjónustunnar og byggi á einstaklingsmiðaðri og þverfaglegri nálgun, samfelldri þjónustu, gagnreyndri þekkingu og jöfnu aðgengi að þjónustu.
Ljósið tók virkan þátt í þessari umræðu og lagði meðal annars áherslu á að krabbameinsendurhæfing verði viðurkennd sem sérhæft fag- og þjónustusvið. Jafnframt hefur Ljósið lagt áherslu á mikilvægi þess að endurhæfing geti hafist snemma eftir greiningu og samhliða krabbameinsmeðferð og að tekið sé mið af þörfum aðstandenda og fjölskyldna.
Það hefur einnig mikla þýðingu að fólk eigi greiðan aðgang að endurmati og viðeigandi stuðningi þegar langvinnar eða síðbúnar afleiðingar krabbameins og meðferðar koma fram.
Þar með getur Hvítbókin orðið grundvöllur að samfelldara, öflugra og réttlátara endurhæfingarkerfi á Íslandi. Fyrir Ljósið skiptir máli að sú mikla sérþekking og reynsla sem byggst hefur upp í krabbameinsendurhæfingu verði nýtt áfram við mótun og þróun þjónustunnar til framtíðar.
Bjart fram undan
Þegar horft er yfir árið 2026 er ljóst að um sannkallað tímamótaár hefur verið að ræða. Nýr langtímasamningur, nýtt heimili og skýrari framtíðarsýn um stöðu endurhæfingar í íslensku heilbrigðiskerfi skapa saman sterkan grunn fyrir næsta kafla í sögu Ljóssins.
Þrátt fyrir allar breytingarnar er eitt sem heldur sér. Kjarninn í starfi Ljóssins verður áfram sá sami: Að vera til staðar fyrir fólk sem greinist með krabbamein og fjölskyldur þess, með fagmennsku, hlýju, virðingu og von að leiðarljósi.