Ljósablaðið

1. TBL. 20. ÁRG 2026

Maraþonið í máli og myndum

Reykjavíkurmaraþonið í máli og myndum

Höfundur

Íris Frímannsdóttir

Ljósmyndari

Ljósið

Myndaþátturinn fangar stemninguna frá Reykjavíkurmaraþoninu þar sem fjölbreyttur hópur hlaupara hljóp til styrktar Ljósinu. Dagurinn var einstakur og einkenndist af gleði, krafti og samstöðu.

Ljósið var söfnunarhæsta góðgerðarfélag Reykjavíkurmaraþonsins í ár og söfnuðust hvorki meira né minna en 38.077.599 kr. Þetta er metsöfnun Ljóssins frá upphafi og árangur sem við í Ljósinu erum ótrúlega stolt af.

Maraþonið er einn stærsti fjáröflunarviðburður Ljóssins og stuðningurinn skiptir starfsemina gríðarlega miklu máli. Í ár hlupu fyrir Ljósið frábærir hlauparar á öllum aldri sem tóku þátt í öllum vegalengdum, allt frá skemmtiskokki upp í heilt maraþon. Saman tókst þeim að safna 6.294 áheitum.

Það er einnig sérstaklega gaman að segja frá því að tveir hlaupahópar sem hlupu fyrir Ljósið, Karfarnir og Team Albert, voru meðal þriggja söfnunarhæstu hlaupahópa maraþonsins í ár.

Við í Ljósinu erum innilega þakklát öllum þeim sem hlupu, hétu á hlaupara, hvöttu áfram og studdu Ljósið með einum eða öðrum hætti.