Ljósablaðið

1. TBL. 19. ÁRG 2025

Rými fyrir unga aðstandendur: „Miklu skemmtilegra en ég bjóst við“

Höfundar

Regína Björk Jónsdóttir

Eva Guðrún Kristjánsdóttir

Ljósmyndari

Eva Guðrún Kristjánsdóttir

Ég er ennþá að nota margt af því sem ég lærði og mér finnst ég hafa fengið mikið meira sjálfstraust eftir þetta.“

Það er ekki einfalt fyrir ungmenni að eiga náinn aðstandanda sem greinst hefur með krabbamein. Oft finna þau fyrir óöryggi, depurð og kvíða, en vita ekki alltaf hvernig þau geta tekist á við þessar tilfinningar. Ljósið vill styðja við fjölskyldur sem glíma við slíkar aðstæður og hefur því upp á námskeið fyrir aðstandendur á aldrinum 14-17 ára. Þar fá þau verkfæri til að efla sjálfstraust, bæta samskipti og læra að takast á við krefjandi aðstæður – allt á léttu og skemmtilegu nótunum.

Hekla Björk, 16 ára dóttir þjónustuþega í Ljósinu, tók þátt í slíku námskeiðinu og segir það hafa haft mikil áhrif á sig. Hún óttaðist að námskeiðið yrði bara gráthringur þar sem allir væru að tala um krabbamein.

Við settumst niður með þessari skemmtilegu stelpu og fengum að heyra hennar upplifun.

„Ég var ekkert svakalega spennt fyrst, en eftir fyrsta tímann hugsaði ég ‘ok, þetta er ekki alslæmt’. Ég var stressuð fyrir því að hitta fullt af unglingum í sömu stöðu og hélt að þetta væri bara eitthvað grátt og erfitt, en svo var þetta bara ógeðslega skemmtilegt! Við ræddum um lífið, áhugamálin okkar og lærðum um samskipti, styrkleika okkar og hvernig við getum farið út fyrir þægindarammann. Ég er ennþá að nota margt af því sem ég lærði og mér finnst ég hafa fengið mikið meira sjálfstraust eftir þetta.“

Frábært tækifæri sem annars kostar mikið

Námskeiðið var haldið í samstarfi við Kvan, sem er leiðandi í námskeiðum um samskipti, sjálfsstyrkingu og jákvæða sálfræði. Annars staðar kostar slíkt námskeið umtalsverða upphæð, en í gegnum Ljósið er það ungmennum að kostnaðarlausu. Þetta er því einstakt tækifæri fyrir þau að styrkja sig og öðlast dýrmæt verkfæri sem þau geta nýtt sér um ókomna framtíð.

Foreldrar ungmennanna sjá líka hversu mikið námskeiðið getur skipt máli. Regína Björk Jónsdóttir, móðir Heklu Bjarkar hikaði ekki við að skrá dóttur sína þegar hún sá auglýsingu um námskeiðið:

„Hekla var byrjuð að missa glampann sinn og það var kominn svona smá skuggi á hana eftir að ég greindist, en námskeiðið hjálpaði henni að standa með sjálfri sér og finna styrk. Mér fannst líka mikilvægt að hún kæmist í hóp með öðrum ungmennum sem skilja hennar aðstæður. Þetta hefur gert samskiptin okkar betri og ég veit að hún á aðferðir sem hún getur sótt í ef hún þarf á þeim að halda í framtíðinni.“

Mæðgurnar Regína og Hekla

Mæðgurnar Regína og Hekla mæla með námskeiðinu fyrir unga aðstandendur

Hvetjum öll ungmenni til að skrá sig

Ef þú þekkir ungmenni sem gæti haft gott af því að taka þátt, hvetjum við þig til að skrá það – þetta er gjöf sem mun endast þeim til framtíðar.

Skráning fer fram í móttöku og verður haft samband þegar næsta námskeiðið verður haldið.

Sjá nánar: https://ljosid.is/adstandendur/adstandendur-14-16-ara/